Mótmælendur fjarlægðir með valdi

Lögreglan í Ósló ber mótmælanda út. Mótmælendur voru margir klæddir …
Lögreglan í Ósló ber mótmælanda út. Mótmælendur voru margir klæddir í samíska þjóðbúninga. Ljósmynd/NTB

Lögreglan í Ósló fjarlægði með valdi þá mótmælendur sem mótmæltu áframhaldandi notkun vindmyllna og flutti á brott í lögreglubílum. Þetta kemur fram á vef norska ríkisútvarpsins NRK.

Þrettán norskir aðgerðasinnar voru við mótmæli í móttökuanddyri olíu- og orkumálaráðuneytisins þegar lögreglan mætti klukkan 02:30 í nótt að norskum tíma, 01:30 að íslenskum.

Mótmælendur, sem voru frá Samtökum samískra aðgerðasinna í Noregi (n. Norske Samers Riksforbund Nuorat) og náttúruverndarsamtökunum Natur og Ungdom, höfðu dvalið í anddyrinu síðan á fimmtudag.

Samtökin voru að mótmæla notkun vindmyllna í Þrændalögum sem hafði verði dæmd ólögmæt í Hæstarétti.

Vindmyllurnar voru skaðlegar beitilandi hreindýra og var úrskurðað að þær færu gegn alþjóðasáttmála um rétt frumbyggja til þess að njóta eigin menningar. Þær voru dæmdar ólögmætar 11. október 2021 en enn eru 150 vindmyllur í fullum snúningi.

Lögreglan gaf fimmtán mínútna fyrirvara

Lögreglan í Ósló greinir frá því á Twitter að hún hafi fengið fyrirskipun frá öryggisdeild ráðuneytisins um að fjarlæga mótmælendur.

„500 dagar af mannréttindabrotum“. Á meðan útburðurinn átti sér stað …
„500 dagar af mannréttindabrotum“. Á meðan útburðurinn átti sér stað stóðu um 50 ungmenni frá Samtökum samískra aðgerðasinna í Noregi og Ungdom og Natur fyrir utan ráðuneytið og mótmæltu. Ljósmynd/NRk

Lögregla segist hafa veitt mótmælendunum viðvörun um að þeir ættu að yfirgefa svæðið stundarfjórðungi áður en þeir voru endanlega fjarlægðir, eftir að hafa neitað að fara.

Í tísti frá lögreglunni í Ósló segir: „Mótmælendur fengu frest til kl. 02:25 til að yfirgefa bygginguna. Enginn hefur fylgt þessari fyrirskipun og verða þeir nú fluttir á lögreglustöðina.“

Gretu Thunberg var synjaður aðgangur

Sænski umhverfisverndarsinninn Greta Thunberg lét sjá sig fyrir utan ráðuneytið. Henni var synjaður aðgangur að ráðuneytinu.

Sænski umhverfissinninn Greta Thunberg lét sjá sig á mótmælunum.
Sænski umhverfissinninn Greta Thunberg lét sjá sig á mótmælunum. Ljósmynd/AFP

„Það er enginn annar möguleiki í boði en að hlusta á þá frumbyggja sem búið er að brjóta á. Það er fáránlegt, þetta sem er að gerast – að samíski ungdómurinn neyðist til þess að beita slíkum aðferðum,“ segir Thunberg í viðtali við við NRK.

„Það að [lögreglan] geri þetta um miðja nótt sýnir fram á að þetta þolir ekki dagsbirtu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert