Bandaríkin hæfðu höfuðstöðvar Hisbollah

Bandaríski herinn gerði loftárásir í Írak.
Bandaríski herinn gerði loftárásir í Írak. AFP

Bandarískar hersveitir hafa gert loftárásir á þrjár herstöðvar Hisbollah-herfylkisins í Írak, sem bundið er Íran tryggðarböndum.

Var það gert í hefndaskyni vegna árása vígamanna sem hliðhollir eru írönskum stjórnvöldum á flugherstöð í Írak sem hýsir bandaríska hermenn. 

Ráðist á höfuðstöðvar Hisbollah

Beindust árásir Bandaríkjamanna að þremur herstöðvum Hisbollah-herfylkisins í Írak auk annarra vopnaðra sveita vígamanna sem hliðhollir eru Íran í Írak.

Voru árásir meðal annars gerðar á höfuðstöðvar Hisbollah, geymslur, æfingasvæði, flugskeyti og ómönnuð loftför.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert