Kanada og Ástralía frysta fjárveitingar til SÞ

Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres hefur lofað yfirgripsmikilli rannsókn á …
Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres hefur lofað yfirgripsmikilli rannsókn á þeim starfsmönnum sem grunaðir eru um aðild að árásinni. AFP/Charly Triballeau

Ástralía og Kanada hafa fryst fjárveitingar til stofnunar á vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) sem aðstoðar palestínska flóttamenn.

Löndin fylgja fordæmi Bandaríkjanna sem frysti fjárveitingar til stofnunarinnar í gær eftir að grunur vaknaði um að einhverjir starfsmenn stofnunarinnar hafi átt þátt í árás Hamas á Ísrael 7. október síðastliðinn. 

Verulegt áhyggjuefni

Utanríkisráðherra Ástralíu, Penny Wong, sagði í gær að grunsemdirnar væru verulegt áhyggjuefni og að verið væri að ræða málin innbyrðis um hvort frysta ætti fjárveitingar til samtakanna. 

Þá hrósaði hún stofnuninni fyrir skjót viðbrögð og fyrir að hafa sagt upp þeim starfsmönnum sem liggja undir grun.

Ahmed Hussen, ráðherra í ríkisstjórn Kanada sem fer fyrir alþjóðaþróun landsins, segir Kanada taka þessum ásökunum af mikilli alvöru og gerir ráð fyrir því að stofnun Sameinuðu þjóðanna muni bregðast við með viðeigandi hætti, skyldi grunurinn vera á rökum reistur. 

Lofaði aðgerðum 

Yfirmaður stofnunarinnar, Philippe Lazzarini, hefur lofað aðgerðum og að draga hina ábyrgu fyrir dóm.

Þá lofaði framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, að framkvæma áríðandi og yfirgripsmikla rannsókn á vegum óháðra aðila.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert