Fjórir einstaklingar fundust látnir á heimili í Ål í Hallingdal í Noregi í kvöld. Norska ríkisútvarpið greinir frá.
Fjölskyldumeðlimur óskaði eftir aðstoð lögreglu sem úrskurðaði fólkið látið á vettvangi, að sögn lögreglustjórans Brit Fyksen.
Ekki er vitað hvað orsakaði andlát fólksins, né hvort að fleiri tengist atvikinu. Lögreglan mun rannsaka málið fram á nótt.
Fréttatilkynning vegna málsins verður gefin út á morgun, að sögn lögreglu.