Innlent
| mbl
| 17.9.2009
| 19:51
Ræddu hagsmuni í sjávarútvegi
Miguel Angel Moratinos, utanríkisráðherra Spánar, átti fund með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, í Stjórnarráðshúsinu í kvöld. Ráðherrarnir ræddu tvíhliða samskipti Íslands og Spánar sem eiga sér langa sögu og þörfina á frekari samræðu milli stjórnvalda í löndunum m.a. um hagsmuni í sjávarútvegsmálum.
Spánn tekur við formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins um næstu áramót er formennskutímabili Svía lýkur og var rætt um þær áherslur sem Spánverjar munu hafa í forystuhlutverkinu.
Forsætisráðherra þakkaði stuðning spænsku stjórnarinnar við umsókn Íslands að Evrópusambandinu og ráðherrarnir urðu ásáttir um að skiptast á upplýsingum í umsóknarferlinu, að því er segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







