„Eitt verkefnið í viðbót" segir Jón Gerald

Jón Gerald Sullenberger sagði að sannleikurinn væri oft erfiður.
Jón Gerald Sullenberger sagði að sannleikurinn væri oft erfiður. mbl.is/Ómar Óskarsson

Fyrir þingfestingu nýrrar ákæru í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur sagði Jón Gerald Sullenbergar að hann væri saklaus af ákærunum. „Sannleikurinn er oft erfiður, en hann er sagna bestur," sagði hann í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins. „Þetta er bara eitt verkefnið í viðbót sem ég þarf að taka að mér og ég mun afgreiða það eins og allt annað sem ég geri," sagi Jón Gerald að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert