Klórgasslys í sundlaug Eskifjarðar rakið til þess að edikssýru var fyrir mistök hellt í klórtank laugarinnar: Fór miklu betur en á horfðist

Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is
MIKIL mildi þykir að ekki varð manntjón í nýrri sundlaug á Eskifirði í gær þegar stórhættulegt klórgas lagði um sundlaugarbygginguna og yfir sundlaugina vegna íblöndunar edikssýru í klórgeymi laugarinnar.

Um þrjátíu manns, flestir börn og unglingar, voru í sundlauginni þegar eitrunarinnar varð vart með þeim hætti að fólk byrjaði að hósta og kúgast, megn fýla fannst af gasinu og loks hné fólk niður, kastaði upp og barðist við talsverð særindi í öndunarvegi. Lögreglukona sem var í sundlauginni þykir hafa sýnt mikið snarræði þegar hún í hendingskasti tók til við að koma fólki upp úr lauginni og út úr byggingunni. Byggingar í nágrenni sundlaugarinnar voru rýmdar, þ. á m. leikskóli. Allir þeir sem voru í lauginni og byggingunni urðu fyrir eitrun, þó í mismiklum mæli væri og þurftu 28 beina læknisaðstoð, en á fimmta tug manna hafði í gærkvöld leitað aðhlynningar á einn eða annan hátt hjá heilsugæslu vegna atburðarins, m.a. voru börnin sem voru í leikskólanum skammt frá lauginni athuguð m.t.t. eitrunar.

Fumlaus viðbrögð hjálparliðs

Eitrunin var tilkynnt Neyðarlínunni rétt um kl. hálftvö í gærdag. Lögregla og björgunarlið komu umsvifalaust á staðinn og fluttu fólk á heilsugæsluna á Eskifirði til aðhlynningar, og hún sendi flesta áfram til Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað og nokkra á Heilsugæsluna á Egilsstöðum til frekari rannsókna. Fjórir voru sendir á sjúkrahús í Reykjavík og tveir til Akureyrar til frekara eftirlits. Fljótlega kom í ljós að enginn var í lífshættu, fólkið hafði flest fremur væg eitrunareinkenni en tveir karlmenn og tvær unglingsstúlkur urðu verst úti. Þeir sem aðhlynningar nutu voru á aldrinum frá hálfs árs til sjötugs.

Á fimmta tug manna kom að björgunaraðgerðum á vettvangi, þ.m.t. heilsugæslufólk, björgunarsveitir frá Fjarðabyggð, Seyðisfirði og Héraði, slökkvilið og lögregla. Lögreglan á Eskifirði og björgunarsveitir lokuðu stóru svæði umhverfis vettvang, innsigluðu sundlaugarbygginguna sjálfa og hús í næsta nágrenni við sundlaugina voru rýmd, þ.m.t. leikskólinn í bænum, og fólki í húsum nokkru fjær, en undan ríkjandi vindátt sem lagði inn fjörðinn, sagt að halda sig innandyra og loka gáttum.

Samhæfingarstöð almannavarna í Reykjavík var virkjuð til aðstoðar meðan á aðgerðum stóð. Á Reykjavíkurflugvelli var farþegaflugvél rýmd og send með henni 6 manna hópur eiturefnaslökkviliðsmanna og greiningarsveit frá Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Heimaslökkviliðin höfðu ekki yfir að ráða fullnægjandi öryggishlífum gegn klórgasinu, sem er mjög eitrað. Björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar, TF- Líf, flaug til Neskaupstaðar síðdegis í gær og flugvél gæslunnar, TF-Sýn, flutti austur þrjá lækna og þrjá sjúkraflutningamenn. Rauði kross Íslands opnaði í gærdag söfnunarstað aðstandenda í grunnskólanum á Eskifirði og á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað og leitaði nokkur hópur fólks þangað.

Gulgræn gufa vall eftir gólfinu

Edikssýru virðist í misgripum fyrir klór hafa verið hellt í næstum tóman klórtank við sundlaugina í gær. Við það að þessi tvö efni blönduðust saman myndaðist stórskaðlegt klórgas sem vall svo upp úr tankinum og lagði með gólfi dæluherbergisins, eða klórklefans, sem er í kjallara byggingarinnar.

Í dæluherberginu eru klórdælur og dæla þær klór út í sundlaugarvatnið í dropatali í gegnum talsvert langar pípulagnir. Ekki er talið að klórgasið hafi komist í sundlaugarvatnið svo neinu nemi en það er þó ekki fullvíst.

"Það voru menn frá mér að vinna í kjallaranum að viðgerðum," sagði Ágúst Bogason pípulagningameistari í samtali við Morgunblaðið, en hann lagði í allt húsið og var staddur á vettvangi ásamt verkefnisstjóra Íslenskra aðalverktaka sem byggðu mannvirkið, Guðgeiri Sigurjónssyni. "Þeir sáu fyrst gula gufu vella eftir gólfinu og svo varð hún græn. Þeir tóku á rás upp stigann, strákarnir. Þeir fengu mest af gasinu á sig, sviða í augu og áttu erfitt um andardrátt," sagði Ágúst.

Eiturgufan vall svo upp frá klórklefanum, sem er við hlið hurðar að kjallara byggingarinnar. Lagði klórgasský út yfir sundlaugina sjálfa og inn í húsið. Urðu gestir á bakka sundlaugarinnar fyrst fyrir eitrunareinkennum en svo breiddist eitrið yfir laugina og inn í húsið að einhverju leyti, mest þó í kjallarann.

Mistök við áfyllingu á klórtank

Svo virðist sem edikssýran hafi verið afgreidd af birgi sundlaugarinnar, Olís, í misgripum fyrir klór, en edikssýra er m.a. mikið notuð í fiskvinnslu. Skv. heimildum Morgunblaðsins var innihaldi brúsa sem kirfilega var merktur sem edikssýra hellt út í klórtankinn og aðili frá birginum fyllti á tankinn. Sá sem hellti á tankinn hefði hins vegar haft rangar upplýsingar um innihald brúsans.

"Á þessu stigi er ekkert hægt að segja um hver ber þarna ábyrgð," sagði Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri í Fjarðabyggð, í gærdag á vettvangi. "Hafi efnið verið afhent fyrir mistök er þar um afar alvarlegan hlut að ræða. Þetta mál verður rannsakað ofan í kjölinn." Hann segir heilsugæslufólk sem og aðra sem komu að atburðunum hafa staðið sig ákaflega vel. "Mér virðist það koma í ljós þegar á reynir hversu heilsugæslan hjá okkur er ótrúlega seig."

Í nótt var rúmur tugur þeirra sem lentu í eitruninni til eftirlits á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað, en aðrir höfðu verið útskrifaðir, utan þeirra sex sem eru til aðhlynningar á Akureyri og í Reykjavík.

Í samtali við lögreglu í gær kom fram að þeir lögregluþjónar og björgunarsveitarmenn sem voru við sundlaugarbygginguna í gærdag fundu margir lykt af klórgasinu og remmu í hálsi, þrátt fyrir að hafa verið áveðurs við bygginguna.

Slökkvilið lauk við að ræsta eiturgufurnar út úr sundlaugarbyggingunni með viftu og blásara í gærkvöld og búið er að tæma laugarkerið. Ekki er ljóst hvenær laugin verður opnuð að nýju en hún verður lokuð í tvo daga hið minnsta.

Stórhættulegt efni

KLÓRGASIÐ sem myndaðist við sundlaugina á Eskifirði er stórhættulegt og getur verið banvænt ef það er í miklu magni, að sögn Eyjólfs Sæmundssonar, forstjóra Vinnueftirlits ríkisins. "Það getur valdið bólgum og skemmt vefi í líkamanum, hvort sem er í augunum, munninum, húðinni, lungunum eða annars staðar."

Klórinn sem notaður er til að sótthreinsa vatnið í lauginni er geymdur í mjög basískri lausn sem heldur gasinu uppleystu. Þegar sýru er hellt í lausnina, eins og gerðist á Eskifirði, hvarfast hún við basann og við það rýkur gasið upp úr blöndunni.

Getur haft langvarandi áhrif

Gasið er gulgrænt á litinn, þungt og dreifir úr sér eftir gólfinu. Tankurinn með efninu var inni í húsi við laugina þar sem iðnaðarmenn voru að störfum en þeir sáu gasið fyrstir, að sögn Eyjólfs.

Klórgasið getur haft langvarandi áhrif og þá helst á lungu ef menn verða alvarlega veikir, að sögn Jakobs Kristinssonar, lyfjafræðings og dósents í eiturefnafræði við Háskóla Íslands. "Lungun eru langviðkvæmust og alvarlegustu einkennin koma fram í þeim. Það getur dregið úr afköstum þeirra og menn geta fengið lungu sem líkjast lungum í gömlu reykingafólk."

Farið yfir allar öryggisreglur

Eyjólfur segir að kannað verði hvort herða þurfi reglur sem gilda um meðferð eiturefna og auka fræðslu starfsmanna, eftir slysið í sundlauginni á Eskifirði. Nákvæmlega verði farið ofan í kjölinn á því hvernig slysið gat átt sér stað.

"Við munum rannsaka slysið ofan í kjölinn til að komast að því nákvæmlega hvernig þetta var. Í framhaldi af því verður farið yfir allar reglur sem gilda um meðferð slíkra efna og skoðað hvort auka þurfi fræðslu starfsfólks sem vinnur með þau."

Hann segir að mjög strangar reglur gildi um meðferð eitraðra efna af þessu tagi og að allir bílstjórar sem flytji þau þurfi að hafa sérstakt réttindanám að baki. Þarna hafi hins vegar orðið mannleg mistök.

Eyjólfur bendir á að tvö slík tilfelli hafi komið upp í sundlaugum úti á landi fyrir nokkuð löngu síðan en þá hafi ekki orðið alvarleg slys á fólki eins og nú. Alvarlegt klórslys hafi hins vegar komið upp í kjötvinnslu á Hellu fyrir um áratug síðan þegar fjórtán manns þurftu að leita sér læknisaðstoðar.

Samræmdar björgunaraðgerðir gengu mjög vel

SAMHÆFINGARSTÖÐ almannavarna var virkjuð í gær þegar ljóst var að mikið hættuástand hafði skapast á Eskifirði. Þaðan var flutningi björgunar- og heilbrigðisstarfsmanna og sjúklinga stjórnað auk þess sem björgunaraðgerðir milli umdæma voru samhæfðar frá stöðinni. Snemma var tekin ákvörðun um að senda flugvélar á staðinn til að annast flutninga á fólki. Tvær sjúkraflutningavélar voru sendar frá Akureyri auk þess sem Landhelgisgæslan sendi þyrluna TF-LÍF og flugvélina TF-SYN til aðstoðar. Þá var flugvél á Reykjavíkurflugvelli í áætlunarflugi til Egilsstaða rýmd og um borð í hana fóru sex eiturefnaslökkviliðsmenn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Þeir sem stóðu að samhæfingaraðgerðum í gær voru sammála um að allt hefði gengið mjög vel fyrir sig, enda hefðu atburðir sem þessir margoft verið æfðir og menn viðbúnir hinu versta.

Samhæfingarstöð almannavarna hefur það hlutverk að samhæfa aðgerðir milli umdæma í almannavarnarástandi, auk þess sem hún fer með umsjón sjúkraflutninga og úrvinnslu á skráningu þolenda stórslysa. Fulltrúar úr röðum viðbragðsaðila og sjálfboðaliða skipa stjórn Samhæfingarmiðstöðvarinnar. Í henni eiga m.a. sæti fulltrúar frá Neyðarlínunni, lögreglu, slökkviliði, Landlækni, Landhelgisgæslunni, Landsbjörg og Rauða krossi Íslands. Slysið á Eskifirði er fyrsta efnaslys sem kallað hefur á aðgerðir Samhæfingarstöðvar almannavarna.

Frá hjálparbeiðni til björgunar

13:35 Neyðarlínunni berst beiðni um aðstoð slökkviliðs vegna klórmengunar við sundlaug Eskifjarðar.

13:40 Ákvörðun tekin um að kalla saman viðbragðsaðila í Samhæfingarstöð almannavarna.

15:08 Flugvél í áætlunarflugi rýmd á Reykjavíkurflugvelli og slökkviliðsmenn fluttir á Egilsstaði.

15:15 Tvær sjúkraflutningsflugvélar frá Akureyri lenda í Neskaupstað. Fyrsta utanaðkomandi hjálpin.

15:56 Flugvélin sem flutti slökkviliðsmennina lendir á Egilsstöðum.

16:06 Þyrlan TF-LÍF lendir í Neskaupstað og flytur í kjölfarið þá alvarlegast slösuðu til Egilsstaða.

16:12 Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, lendir á Egilsstöðum með fólk af greiningarsviði LSH. Síðar flytur hún hina slösuðu til Akureyrar og Reykjavíkur.

19:30 Einn sjúklingur lagður inn á slysadeild LSH í Fossvogi og þrír á barnaspítala Hringsins. Tveir þegar í aðhlynningu á FSA.

19:55 Aðgerðum vegna klórgasmengunar á Eskifirði lokið í Samhæfingarstöð almannavarna.

Mannleg mistök hjá starfsmanni

EINAR Benediktsson, forstjóri OLÍS, staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær að fyrstu niðurstöður rannsóknar bentu til þess að það hefði verið starfsmaður félagsins sem varð fyrir þeirri ógæfu að afgreiða rangt efni, og þannig orðið valdur að slysinu á Eskifirði, en að um mannleg mistök hefði verið að ræða.

"Við erum mjög slegnir yfir málinu og hugur okkar er hjá þolendum. Sem betur fer benda fyrstu fréttir til þess að afleiðingarnar hafi verið vægari en óttast var," segir Einar.

Björgunarsveitirnar ræstar

AÐ mati Jóns Gunnarssonar, framkvæmdastjóra slysavarnafélagsins Landsbjargar, gengu björgunaraðgerðir mjög vel fyrir sig. Um 50 sjálfboðaliðar frá björgunarsveitum á Austurlandi störfuði í gær við sjúkraflutninga og flutninga á starfsmönnum heilbrigðisstofnana, auk þess björgunarsveitarmenn veittu lögreglu aðstoð við rýmingu og verndun svæða.

Fagmannlega staðið að rýmingu

JÓNÍNA Sigurðardóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn segir fagmannlega hafi verið staðið að rýmingu svæðisins sem eiturgufurnar bárust um og snemma hafi björgunarhópum tekist að ná stjórn á ástandinu. Rýma varð 14 íbúðarhús og leikskóla í nágrenni laugarinnar en skilvirk vinnubrögð og hagstæð vindátt réðu því að hættuástand varaði aðeins í rúmar tvær klukkustundir. Húsin voru í kjölfarið reykræst og gátu íbúar farið til síns heima í gærkvöldi.

Söfnunarstöðvar og nóg af lyfjum

ANNA Björg Aradóttir, yfirhjúkrunarfræðingur hjá Landlæknisembættinu, segir að nægilega mikið hafi verið af læknum, hjúkrunarfólki og lyfjum á Austurlandi til þess að annast alla þá sem urðu fyrir óþægindum vegna eiturefnanna. Að sögn Sólveigar Ólafsdóttur, sviðsstjóra Rauða kross Íslands, voru opnaðar söfnunarstöðvar aðstandenda á Fjórðungssjúkrahúsi Austurlands og í grunnskólanum á Eskifirði í kjölfar efnaslyssins. Þar gátu aðstandendur fórnarlamba slyssins fengið upplýsingar um gang mála og sálrænan stuðning hjá starfsmönnum RKÍ. Þó nokkrir leituðu sér áfallahjálpar og héldu sjálfboðaliðar aðstöðunni opinni fram eftir kvöldi.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka