Morgunblaðið flytur í Hádegismóa

Flutningar upp í nýtt húsnæði Morgunblaðsins að Hádegismóum 2 við Rauðavatn hafa staðið yfir undanfarna viku og verður um helmingur starfsmanna fluttur á morgun. Stefnt er að því að seinustu starfsmennirnir flytji þann 9. júlí. Alls starfa um 250 manns á blaðinu og því um umfangsmikla flutninga að ræða. Framkvæmdir við hið nýja húsnæði standa enn yfir og þá einkum á neðri hæðinni, en andinn þykir góður í hinu nýja húsnæði og umhverfið einkar fagurt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert