Biður um tvö ár fyrir NFS

Róbert Marshall.
Róbert Marshall.

Róbert Marshall, forstöðumaður NFS, biður eigendur 365 miðla að loka ekki fréttastöðinni áður en hún nær að sanna sig og bendir á að það taki meira en 10 mánuði að sýna að viðskiptahugmyndin gangi upp. Róbert kemur beiðni sinni á framfæri í opnu bréfi í Morgunblaðinu í dag.

"Okkur var sagt að við fengjum tvö til þrjú ár til þess að láta NFS sanna sig. Gefðu okkur tvö. Nú um mánaðamótin stóð til að við færum í dreifingu um allt suðvesturhornið. Ekki loka sjoppunni áður en búið er að opna hana til fulls. Í fullri opinni dreifingu er þetta viðskiptahugmynd sem gengur upp. En það tekur meira en 10 mánuði að sýna það. Þetta vita nágrannar okkar í Danmörku og Noregi sem undirbúa nú sambærilega miðla en ætla að skila hagnaði eftir þrjú ár.

Kæri Jón, þú ræður þessu á endanum. Það vita allir. Taktu slaginn með okkur," skrifar Róbert.

Sjá bls. 21 í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert