Þóttist vera meðvitundarlaus eftir umferðaróhapp

Lögreglumenn geta lent í ótrúlegustu aðstæðum og verða ávallt að vera við öllu búnir. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykjavík barst tilkynning um umferðaróhapp í austurbænum um helgina þar sem bíll hafði farið út af veginum og hafnað á vegg.

Ökumaðurinn var með beltið spennt en loftpúði í stýri bílsins hafði sprungið út. Ekki var að sjá neina áverka á ökumanninum en hann virtist meðvitundarlaus þegar að var komið. Hann var því fluttur á slysadeild til frekari rannsóknar en bifreið hans var fjarlægð af vettvangi.

Á slysadeild kom hins vegar í ljós að maðurinn var alls ekki meðvitundarlaus. Hann hafði verið með leikaraskap allan tímann og reynt að villa um fyrir lögreglunni. Ekki er fyllilega ljóst hvað vakti fyrir manninum en þegar hugað var að sárum hans fannst áfengisþefur, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Því var brugðið á það ráð að taka úr honum tvö blóðsýni í þágu rannsóknar málsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert