Alcan og Landsvirkjun framlengja viljayfirlýsingu

Álver Alcan í Straumsvík
Álver Alcan í Straumsvík mbl.is/Sverrir

Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, og Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, undirrituðu í dag samkomulag sem framlengir fram á mitt næsta ár viljayfirlýsingu Alcan og Landsvirkjunar um gerð raforkusamnings til stækkunar álversins í Straumsvík.

Samkomulagið felur einnig í sér formlega staðfestingu á að samninganefndir fyrirtækjanna hafi náð samkomulagi um rafmagnsverð. Endanlegur texti í rafmagnssamningi milli Alcan og Landsvirkjunar liggur ekki fyrir en í fréttatilkynningu segir að stefnt sé að því að klára hann á næstu vikum.

Ætlunin mun svo vera að leggja rafmagnssamninginn fyrir stjórnir Alcan Inc. og Landsvirkjunar til samþykktar á næsta ári en ekki hefur verið ákveðið hvenær það verður gert.

Þá undirrituðu Rannveig og Friðrik einnig samning milli Alcan og Landsvirkjunar um skiptingu kostnaðar vegna næsta skrefs í undirbúningi virkjana í Neðri-Þjórsá.

Stjórn Landsvirkjunar samþykkti á fundi sínum í morgun að heimila forstjóra fyrirtækisins að ráðast í útboð á hönnun virkjananna í Neðri-Þjórsá. Nauðsynlegt er að hefja þessa vinnu strax svo unnt verði að standa við orkuafhendingu á tilsettum tíma en ráðgert er að stækkun álversins í Straumsvík geti komist í fullan rekstur í ársbyrjun 2011 ef núverandi áform ganga eftir. Orkukaup Alcan af Landsvirkjun til stækkunarinnar munu nema um 2.300 GWh á ári.

Samkvæmt samningi Alcan og Landsvirkjunar greiðir Alcan 2/3 af kostnaði vegna þessa undirbúnings. Alcan fær þennan kostnað að fullu endurgreiddan ef af stækkun verður en að öðrum kosti á fyrirtækið takmarkaðan endurgreiðslurétt ef rafmagnið úr þessum virkjunum verður selt öðrum innan ákveðins tímafrests.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert