Alcan sendir geisladisk á hvert heimili í Hafnarfirði

Álver Alcan í Straumsvík
Álver Alcan í Straumsvík mbl.is/Sverrir

Alcan á Íslandi hefur sent öllum hafnfirskum heimilum geisladisk með tónleikum Björgvins Halldórssonar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands í haust.

Á heimasíðu Alcan segir, að fyrirtækið hafi boðið starfsmönnum sínum og Hafnfirðingum öllum að þiggja miða á tónleika Björgvins og Sinfóníuhljómsveitarinnar fyrr á árinu í tilefni af 40 ára afmæli álversins. Í kjölfar tónleikanna hafi fæðst sú hugmynd að færa starfsmönnum og bæjarbúum öllum að gjöf mynd- og geisladisk með upptöku frá tónleikunum. Hugmyndinni hafi nú verið hrundið í framkvæmd.

Í bréfi, sem fylgir disknum, er einnig greint frá þeirri ætlun fyrirtækisins, að kynna með margvíslegum hætti á næstu misserum starfsemi sína fyrir bæjarbúum og gefa fólki þannig tækifæri til að mynda sér skoðun á fyrirhugaðri stækkun álversins í Straumsvík, sem væntanlega verði kosið um með einhverjum hætti á næstunni.

„Við gerum okkur grein fyrir því, að í aðdraganda kosninganna munu ólík sjónarmið takast á. Við vonumst til að þau skoðanaskipti verði málefnaleg og heilbrigður grunnur að vel ígrundaðri afstöðu fólks til málsins," segir á heimasíðu Alcan.

Geisladiskurinn sem Hafnfirðingar fá að gjöf.
Geisladiskurinn sem Hafnfirðingar fá að gjöf.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert