Lögreglubíllinn hefur bilað í 58 skipti á tveimur árum

Á dögunum varð alvarleg bilun í lögreglubílnum í Búðardal og stendur hann því nú við bílaverkstæði þar til varahlutir berast. Er þetta í 58. skiptið á síðustu tveimur árum sem bíllinn bilar. Að jafnaði hefur því bíllinn verið á verkstæði tvisvar í mánuði. Viðgerðir hafa tekið mislangan tíma en ekki er óalgengt að þær hafi tekið tvær vikur.Þetta kemur fram á fréttavefnum Skessuhorni.

Bifreiðin, sem er af gerðinni Isuzu Trooper árgerð 2000, kom notuð til Búðardals fyrir nokkrum árum og að sögn Jóhannesar Björgvinssonar varðstjóra var þá rætt um að hún yrði þar til bráðabirgða. Henni hefur nú verið ekið ríflega 272 þúsund kílómetra. Jóhannes segir að bifreiðin hafi nánast frá upphafi verið gallagripur hinn mesti og nefnir sem dæmi að 33 skipti á undanförnum tveimur árum hafi hún verið á verkstæði vegna alvarlegra bilana. Ekki hefur Jóhannes undir höndum tölur yfir viðgerðarkostnað en telur augljóst að hann sé gríðarlegur.

Jóhannes segist afar þreyttur á þessu ástandi því umdæmið sé stórt og því sé mjög mikilvægt að hægt sé að treysta einu lögreglubifreið embættisins. Hann segir mjög erfitt og hættulegt að að fara í forgangsakstur um slæma vegi á bifreið sem ekki sé hægt að treysta fullkomlega. Slíkt sé ekki ásættanlegt. Þegar lögreglubifreiðin hefur verið til viðgerðar hefur Jóhannes oft lagt embættinu til sinn eigin fjölskyldubíl. Hann segir það mikið neyðarbrauð sérstaklega vegna þess að slíkir bílar séu ekki tryggðir til forgangsaksturs.

Þessa dagana ekur Jóhannes á gamalli lögreglubifreið úr Borgarnesi en lögregluumdæmið í Búðardal var um áramótin fært undir lögreglustjórann í Borgarnesi. Jóhannes segist vonast til þess að ferli áðurnefndrar Isuzu Trooper bifreiðar sem lögreglubifreiðar ljúki sem allra fyrst og umdæminu verði sinnt með búnaði sem hæfi aðstæðum.

Fréttavefurinn Skesshorn

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert