Nikótínlyf ódýrust í Skipholtsapóteki samkvæmt könnun Neytendasamtakanna

Reykingar.
Reykingar. AP

Neytendasamtökin könnuðu í síðustu viku verð á nikótínlyfjum í 11 apótekum: Apótekaranum, Apótekinu, Árbæjarapóteki, Garðsapóteki, Laugarnesapóteki, Lyf og heilsu, Lyfju, Lyfjavali, Lyfjaveri, Rimaapóteki og Skipholtsapóteki.

Skipholtsapótek er alla jafna með lægsta verðið. Næst bestu kjörin eru hjá Garðsapóteki og þá hjá Lyfjaveri. Hæst er verðið í Lyfjavali, Lyfju og Laugarnesapóteki. Munur á hæsta og lægsta verði getur verið mikill eða allt að 90%. Verðmunur er að meðaltali um 46%, að því er segir í frétt á vef Neytendasamtakanna.

Vefur Neytendasamtakanna

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert