Tugir mótmæla lagningu tengibrautar um Álafosskvos

Frá mótmælunum við gömlu ullarverksmiðjuna í Álafosskvosinni í Mosfellsbæ
Frá mótmælunum við gömlu ullarverksmiðjuna í Álafosskvosinni í Mosfellsbæ mbl.is/Júlíus

Á milli 50 og 60 manns taka þátt í mótmælaaðgerðum vegna lagningu tengibrautar um Álafosskvos. Að sögn Hildar Margrétardóttur, félagsmanns í Varmársamtökunum, er mikill hugur í fólki og ætlar hópurinn ekki að yfirgefa svæðið fyrr en bæjaryfirvöld svari kröfum þeirra. Hafa mótmælendur komið sér fyrir fyrir framan vinnuvélar og koma í veg fyrir að þær verði hreyfðar.

Að sögn Hildar eru meðlimir hljómsveitarinnar SigurRósar meðal mótmælenda enda rekur hljómsveitin upptökuver á svæðinu. Mótmælendur eru bæði íbúar á svæðinu sem og utanbæjarfólk sem unnir íslenskri náttúru, að sögn Hildar.

Í tilkynningu frá Varmársamtökunum kemur fram að stórvirkar vinnuvélar hafi grafið sér leið inn í trjálundinn í hlíðinni á móts við gömlu ullarverksmiðjuna við Álafoss í Mosfellsbæ. Undanfarið ár hafa íbúar ásamt Varmársamtökunum margítrekað skorað á bæjarstjórn Mosfellsbæjar að láta meta áhrif tengibrautar úr Helgafellslandi um Álafosskvos á umhverfið, íbúana og atvinnustarfsemi í Kvosinni en án árangurs, að því er segir í tilkynningu.

„Nú þegar eyðileggingin blasir við sjá íbúar á svæðinu sér ekki annað fært en að krefjast lögbanns og hefur framkvæmdin því verið kærð til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála.

Varmársamtökin hafa jafnframt ákveðið að kæra úrskurð umhverfisráðherra um að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum til dómstóla og hefur Katrín Theódórsdóttir, héraðsdómslögmaður tekið að sér málsóknina," segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert