Með bíl í drætti á 105 km hraða

Lögreglumenn á Akranesi voru við hraðamælingar á Vesturlandsvegi í gær og mældu hraða bíls 105 km á klukkustund. Þegar betur var að gáð reyndist bíllinn vera með annan bíl í drætti og við slíkar aðstæður en hámarkshraði ekki 90 km heldur 30 km á klukkustund. Ökumaður dráttarbílsins var sviptur ökuleyfi á staðnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert