Menningarhús á Akureyri mun heita Hof

Menningarhúsið Hof mun rísa við Strandgötu á Akureyri
Menningarhúsið Hof mun rísa við Strandgötu á Akureyri mbl.is/Skapti

Hof mun menningarhús sem nú rís á Akureyri heita. Alls bárust 338 tillögur um 241 nafn á húsið. Tveir skiluðu inn tillögu að vinningsnafninu: Aðalbjörg Sigmarsdóttir og Heimir Kristinsson en þau búa bæði á Akureyri.

Dómnefnd sem skipuð var Braga V. Bergmann, ráðgjafa, Margréti Jónsdóttur, leirlistakonu og Sverri Páli Erlendssyni menntaskólakennara komst að einróma niðurstöðu um að húsið skyldi hljóta nafnið Hof. Stjórn Akureyrarstofu hefur samþykkt tillöguna, að því er segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert