Endurskoðuð áætlun í jafnréttismálum

Stjórnarráðið.
Stjórnarráðið. mbl.is/Sverrir

Ríkisstjórnin samþykkti í dag tillögu Magnúsar Stefánssonar, félagsmálaráðherra, um að leggja fram tillögu til þingsályktunar um endurskoðaða áætlun í jafnréttismálum sem unnin var í félagsmálaráðuneytinu ásamt skýrslu um stöðu og horfur í jafnréttismálum.

Fram kemur á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins, að endurskoðuð áætlun byggist á þeirri jafnréttisáætlun, sem var lögð fram árið 2004 og gildir til loka maí árið 2008. Áherslurnar séu hinar sömu en fylgt sé eftir og metin staða verkefna sem unnin hafa verið, nýjum verkefnum bætt inn þar sem við á og felld út verkefni sem lokið er. Einnig hafi tímaáætlunum einstakra verkefna verið breytt.

Áfram þykir nauðsynlegt að samþætta jafnréttis- og kynjasjónarmið daglegu starfi allra ráðuneyta. Samþætting sé þó ekki markmið í sjálfu sér heldur jafnrétti kynjanna.

Í síðustu áætlun var lögð áhersla á að jafna hlutföll kynjanna í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum ráðuneyta. Árið 2004 var hlutur kvenna 38 prósent en 37 prósent 2005. Félagsmálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið hafa náð því að auka hlut kvenna í 40 prósent eins og stefnt var að. Í áætluninni kemur fram, að ríkisstjórnin þurfi að huga betur að þessu á næstu árum og að því verði áfram unnið í þessari áætlun.

Kynbundinn launamunur er enn eitt af helstu áhersluatriðum framkvæmdaáætlunarinnar. Lengi vel minnkaði þessi munur en upplýsingar frá Hagstofu Íslands og könnunin „Launamyndun og kynbundinn launamunur“ sem Capacent Gallup vann fyrir félagsmálaráðuneytið árið 2006 benda til þess að stöðnun hafi ríkt undanfarin ár. Því er talið mikilvægt að halda vinnunni áfram. Kynbundinn launamunur og verkefni tengd vinnumarkaði fá því talsvert rými í þessari framkvæmdaáætlun.

Skýrsla um stöðu og þróun í jafnréttismálum frá árinu 2004 er lögð fram samhliða endurskoðaðri jafnréttisáætlun. Markmið skýrslunnar er að fara yfir stöðu þeirra verkefna sem er að finna í áætlun í jafnréttismálum fyrir árin 2004–2008 þegar gildistími hennar er hálfnaður.

Skýrsla um stöðu og þróun jafnréttismála frá árinu 2004

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert