Gjöld innifalin hjá Icelandair

Vefur Icelandair.
Vefur Icelandair.

Leitarvél Icelandair hefur verið breytt þannig að nú sést heildarverð flugferðarinnar frá upphafi bókunarferlisins, þ.e. að meðtöldum sköttum og gjöldum. Sami háttur er á bókunarvél British Airways en hjá Iceland Express kemur heildarverðið ekki fram fyrr en á öðru stigi bókunarinnar.

Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, sagði að breytingin hefði verið gerð í framhaldi af umræðu í útlöndum um hvernig ætti að greina frá sköttum og gjöldum sem leggjast á flugferðir og nýlegum tilmælum frá neytendastofu og talsmanni neytenda um þetta efni. Aðspurður sagði hann að í auglýsingum Icelandair hefði heildarverðið alltaf komið fram og eina breytingin, sem nú væri gerð, lyti að bókunarvélinni.

Talsmaður British Airways á Íslandi, Bolli R. Valgarðsson, sagði að heildarverð flugferða hefði verið tilgreint á vef félagsins frá því það hóf að selja flugferðir til og frá Íslandi.

Á öðru stigi hjá Iceland Express

Bókunarvél Iceland Express sker sig því úr bókunarvélum keppinautanna að því leyti að þar sjá viðskiptavinir ekki heildarverð flugferðarinnar með sköttum og gjöldum fyrr en á öðru stigi bókunarinnar, einu stigi seinna en hjá Icelandair og British Airways.

Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Iceland Express, sagði þetta samræmast tilmælum talsmanns neytenda og sagði ennfremur að í öllum auglýsingum fyrirtækisins væri heildarverðið tilgreint. "Eini staðurinn þar sem þetta er aðskilið er í bókunarvélinni," sagði hann. Ekki hefði verið rætt um að breyta því.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka