Bubba Morthens dæmdar bætur fyrir meiðyrði

Bubbi Morthens og Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður hans, í héraðsdómi …
Bubbi Morthens og Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður hans, í héraðsdómi þegar málið var flutt þar. mbl.is/Brynjar Gauti

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að fyrrum ritstjóri tímaritsins Hér & nú skuli greiða Bubba Morthens 700 þúsund krónur í miskabætur fyrir fyrirsögn á forsíðu blaðsins þar sem stóð „Bubbi fallinn". Ummælin voru einnig dæmd dauð og ómerk.

Bubbi krafðist þess að ummælin, bæði á forsíðu blaðsins og í samhljóða fyrirsögn inni í blaðinu yrðu dæmd dauð og ómerk og Garðar Örn Úlfarsson, fyrrum ritstjóri tímaritsins og 365 prentmiðlar ehf., sem gefur blaðið út, greiddu honum 20 milljónir króna í bætur.

Í dómi Hæstaréttar segir, að ekki sé talið unnt að skilja forsíðufyrirsögnina öðruvísi en svo að fullyrt væri að Bubbi væri byrjaður að neyta vímuefna, enda sé þorra þjóðarinnar kunnugt um vímuefnaneyslu hans fyrr á árum.

Hæstiréttur taldi, að eins og fullyrðingin hafi verið fram sett væri hún talin fela í sér ærumeiðandi aðdróttun og voru ummælin dæmd dauð og ómerk. Hins vegar var ekki talið að samhljóða fyrirsögn á blaðsíðu 16 til 17 í tölublaðinu fæli í sér fullyrðingu um vímuefnanotkun Bubba eða aðdróttun í skilningi hegningarlaga, enda væri hún í samhengi við texta þar sem greint var frá því að Bubbi væri byrjaður að reykja á ný.

Hæstiréttur féllst á að Bubbi ætti rétt á miskabótum úr hendi ritstjórans vegna þeirra ummæla sem birtust á forsíðu blaðsins. Hæstiréttur segir að miskabótakrafa Bubba hafi einnig reist á því að friðhelgi einkalífs hans hefði verið rofin með óheimilli birtingu mynda og umfjöllun um einkamálefni hans í umræddu tölublaði. Umræddar myndir hefðu verið teknar án samþykkis eða vitundar hans og að friðhelgi einkalífs nyti verndar samkvæmt 71. gr. stjórnarskrárinnar.

Hæstiréttur segir, að þegar metnar séu þær skorður, sem friðhelgi einkalífs setti tjáningarfrelsinu, skipti það grundvallarmáli hvort hið birta efni, myndir eða texti, gæti talist þáttur í almennri þjóðfélagsumræðu og ætti þannig erindi til almennings. Rétturinn taldi ekki, að þær myndir sem til umfjöllunar væru tengdust á nokkurn hátt slíkri umræðu. Bubbi hefði verið á ferð um Reykjavík á bifreið sinni þegar myndirnar voru teknar og hann hefði við þær aðstæður með réttu mátt vænta þess að friðhelgi einkalífs síns yrði virt. Hefði sú friðhelgi verið brotin með birtingu umræddra mynda og verið framin meingerð gegn friði og persónu Bubba, sem Garðar Örn bæri miskabótaábyrgð á.

Þá segir Hæstiréttur, að þar sem Bubbi hafði oftar en einu sinni gert baráttu sína við tóbaksfíkn að umræðuefni í viðtölum við fjölmiðla væri ekki talið að ummæli á 17. síðu tölublaðsins um reykingar hans gætu talist brot á friðhelgi einkalífs hans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert