Þrír í fangageymslum eftir skólaball FB á Selfossi

Lögreglan á Selfossi segir mikla ölvun hafa verið á balli Fjölbrautaskólans í Breiðholti, sem haldið var á Hótel Selfossi í gærkvöld og gista þrír fangageymslur vegna óláta, ölvunar og slagsmála. Dyravörður meiddist á baki er hann reyndi að ná ungum manni sem braut rúðu í hótelinu og var fluttur til Reykjavíkur á sjúkrahús. Lögregla telur að hann hafi dottið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert