Rúm 70% andvíg kvótakerfinu

Rúmlega 70% eru andvíg kvótakerfinu í sjávarútvegi, samkvæmt skoðanakönnun Blaðsins. Tæplega 30% eru hlynnt. Í könnuninni kom mesta andstaðan fram í Norðvesturkjördæmi. Þá segir í Blaðinu í dag að niðurstöðurnar hafi ekki komið Einari K. Guðfinnssyni sjávarútvegsráðherra á óvart.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert