Fé heimt af fjalli

Íslenskt sauðfé.
Íslenskt sauðfé. mbl.is/Árni Torfason

Kristján Axelsson, bóndi á Bakkakoti skammt frá Borgarnesi, segir fé hafa verið heimt af fjalli í dag, sex kindur alls. Það er heldur óvenjulegt miðað við árstíma enda langt í réttir. Bændur lentu í afleitu verði í fyrstu göngum í haust og telur Kristján að kindurnar hafi týnst þá, en þær tilheyra honum þó ekki. Hann segist ekki vita hvort fleiri kindur vanti en fjórar hafi fyrir skömmu verið heimtar af fjalli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert