Slasaðist á snjóbretti

Frá skíðasvæðinu Tungudal.
Frá skíðasvæðinu Tungudal. mbl.is/Halldór Sveinbjörn

Ungur piltur slasaðist nokkuð þegar hann var að renna sér á snjóbretti í Tungudal á Ísafirði um áttaleytið í kvöld og var erfitt að ná til hans þar sem hann var í gili. Drengurinn verður fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði en hann var með meðvitund þegar hann var sóttur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka