Allsherjarnefnd afgreiddi frumvarp um afnám einkasölu ríkisins á léttvíni

Lagt er til í frumvarpi að einkasala ÁTVR á léttvíni …
Lagt er til í frumvarpi að einkasala ÁTVR á léttvíni verði afnumin. mbl.is/Árni Sæberg

Allsherjarnefnd Alþingis hefur afgreitt til annarrar umræðu þingmannafrumvarp sem gerir ráð fyrir því, að afnema einkasölu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á áfengi sem er 22% eða minna að styrkleika. Frumvarpið er á dagskrá þingfundar í dag.

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins en 13 aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar eru meðflutningsmenn. Frumvarpið hefur þrisvar áður verið lagt fram á Alþingi.

Í áliti allsherjarnefndar segir, að nefndin telji eðlilegt að sala á vörum og þjónustu sé á hendi einkaaðila en ekki opinberra aðila. Nefndin telji rétt að færa sölu á áfengi í þann farveg og líti svo á að með frumvarpinu sé stigið lítið skref í þá átt að gera sölu á áfengi frjálsa eins og tíðkist í verslunum víða í nágrannalöndum. Í þessu sambandi bendir nefndin jafnframt á að á landsbyggðinni sé áfengi víða selt í almennum verslunum án nokkurra vandkvæða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert