Kona slösuð eftir umferðarslys á Þrengslavegi

Frá slysstað á Þrengslavegi í dag.
Frá slysstað á Þrengslavegi í dag. mbl.is/Júlíus

Kona er alvarlega slösuð eftir árekstur fólksbíls og jeppa á Þrengslavegi. Konan sat föst í bifreið sinni og tók það björgunarmenn um klukkustund að ná henni út, var hún flutt til Reykjavíkur á Landspítala - háskólasjúkrahús með Líf, þyrlu Landhelgisgæslunnar í kjölfarið. Aðrir munu ekki hafa slasast í árekstrinum en á þriðja tug björgunarmanna, sjúkraflutningamenn og menn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og Slökkviliði Hvergargerðis auk lögreglu voru kallaðaðir út.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert