Suðurlandsvegur lokaður áfram vegna alvarlegs umferðarslyss

Frá slysstað á Suðurlandsvegi þar sem vöruflutningabíll og jeppi rákust …
Frá slysstað á Suðurlandsvegi þar sem vöruflutningabíll og jeppi rákust saman.

Suðurlandsvegur er lokaður í báðar áttir við Kotströnd, skammt austan við Hveragerði vegna alvarlegs umferðarslyss sem þar varð í hádeginu. Að sögn lögreglunnar á Selfossi verður vegurinn lokaður í að minnsta kosti tvær klukkustundir í viðbót en lögregla er að störfum á slysstað.

Ekki hafa fengist nánari upplýsingar um slys á fólki en jeppabifreið og flutningabifreið, sem komu úr gagnstæðum áttum, skullu saman. Ökumennirnir voru einir í bílunum.

Ökumönnum er bent á að aka Hvammsveg en þar sem þungatakmarkanir eru á þeim vegi eru ökumenn flutningabifreiða beðnir um að aka Þrengslin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert