Ölvuð undir stýri með barn í bílnum

Kona á fertugsaldri var tekin fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun. Með konunni í bílnum var barn hennar sem er á leikskólaaldri. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að þetta mál sé ekki einsdæmi en fyrr í vetur stöðvuðu lögreglumenn konu á svipuðum aldri fyrir sömu sakir. Sú var að sækja barn sitt í leikskóla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert