Skemmdir unnar á bifreið lögreglumanns á Blönduósi

Skemmdir voru unnar í gærnótt á einkabifreið lögreglumanns hjá lögreglunni á Blönduósi. Lögreglumaðurinn býr á Skagaströnd og var ekki við vinnu er skemmdarverkið var unnið, og var bifreiðinni lagt við heimili hans. Um er að ræða sama lögreglumann og sprengja var sprengd hjá fyrir skömmu, eru tveir menn í haldi lögreglu vegna rannsóknar málsins og er um að ræða sömu aðila og voru valdir að umræddri sprengingu. Játning liggur fyrir í málinu. Töluverðar skemmdir urðu á bifreiðinni sem er nýleg jeppabifreið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert