Umferðarslys við Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Minniháttar umferðarslys átti sér stað brottfararmegin við Flugstöð Leifs Eiríkssonar íd dag þegar vinnuvél var bakkað á kyrrstæða sendibifreið. Umráðamaður bifreiðarinnar var staðsettur inni í bifreiðinni og var að vinna við að afferma vörur úr henni þegar áreksturinn átti sér stað. Hann slasaðist á baki og var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til nánari athugunar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert