Hjólaði niður lögreglumann

Karlmaður var handtekinn í Fellahverfi í dag eftir að hann hjólaði niður lögreglumann með þeim afleiðingum að hann handleggsbrotnaði. Kona sem áður hefur kvartað undan manninum hringdi um níu í morgun og kvartaði undan því að hann væri að valda ónæði.

Maðurinn var farinn þegar lögreglu bar að en var ákveðið að bíða hans, hann bar að aftur um tíuleytið og var þá á reiðhjóli, lögregla gaf honum merki um að stöðva með góðum fyrirvara en sinnti hann því ekki heldur hjólaði á talsverðum hraða á lögregluþjóninn með fyrrgreindum afleiðingum.

Maðurinn var skömmu síðar handtekinn og færður til yfirheyrslu, en hann er talinn eiga við andlega erfiðleika að etja. Honum var sleppt nú síðdegis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert