Býður sig fram í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar

Magnús Már Guðmundsson.
Magnús Már Guðmundsson.

Magnús Már Guðmundsson formaður Ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar, býður sig fram í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins sem haldinn verður dagana 13.-14. apríl í Egilshöll.

Magnús Már er 24 ára stjórnmála- og sagnfræðinemi við Háskóla Íslands. Magnús hefur verið félagsmaður í Samfylkingunni frá stofnun flokksins og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum undanfarin ár, að því er segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert