Norræna gat ekki lagst að bryggju vegna veðurs

Norræna liggur í vari austan við Brimnes.
Norræna liggur í vari austan við Brimnes. mynd/Magnús

Ferjan Norræna kom til Seyðisfjarðar í morgun, en komst ekki að bryggju vegna hvassviðris. Norræna liggur nú austan við Brimnesið, yst í Seyðisfirði og bíður þess að veðrið gangi niður. Tvö hjólhýsi sem geymd eru innan tollgirðingarinnar við Strandarbakka, fuku á hliðina um tíuleytið í morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert