Skemmdu tæplega 30 bifreiðar í nótt

Tveir menn gerðu sér að leik að skemma tæplega 30 bifreiðar á Framnesvegi og Vesturgötu í Reykjavík um tvö í nótt. Að sögn lögreglu náðist annar mannanna en hann var undir áhrifum áfengis.

Sjónvarvottur gerðu lögreglu aðvart en hann sá til mannanna sparka í bifreiðirnar, m.a. í speglana með þeim afleiðingum.

Að sögn lögreglu létu mennirnir um 40 bifreiðar finna fyrir því en þeir skemmdu 27 þeirra.

Ekki er vitað hvað mönnunum gekk til og verður skýrsla tekin af manninum sem var handtekinn í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka