Hitaveita Suðurnesja og Norðurál undirrita orkusamning vegna álvers í Helguvík

Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja, og Ragnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar …
Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja, og Ragnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og fjármálasviðs Norðuráls,skrifa undir samninginn.

Norðurál og Hitaveita Suðurnesja undirrituðu í dag samning um orkusölu til fyrirhugaðs álvers Norðuráls í Helguvík. Samkvæmt samningnum mun HS útvega Norðuráli raforku fyrir álverið í Helguvík, þar á meðal allt að 150 MW fyrir fyrsta áfanga álversins sem miðast við 150.000 tonna ársframleiðslu.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu nú síðdegis.

Reykjanesbær, Hitaveita Suðurnesja og Norðurál undirrituðu á vormánuðum 2005 samstarfssamning um könnun á möguleikum þess að álver yrði reist. Strax í kjölfarið var farið af stað með frekari könnun á orkuöflun, umhverfisskilyrðum, hafnaraðstæðum, staðsetningu og öðrum þáttum. Í júní sl. undirrituðu Norðurál, Hitaveita Suðurnesja og Orkuveita Reykjavíkur viljayfirlýsingu um raforkusölu til fyrirhugaðs álvers í Helguvík.

Í tilkynningunni segir, að unnið hafi verið markvisst að undirbúningi og gangi allt samkvæmt áætlun sé áformað að jarðvegsframkvæmdir hefjist í lok árs 2007 og að fyrsta afhending orku til álvinnslu verði árið 2010.

Ragnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og fjármálasviðs Norðuráls, segir í tilkynningunni, að undirritun orkusamningsins sé afar mikilvægan áfanga á leiðinni að fyrirhuguðu álveri í Helguvík. „Við stefnum að því að kynna mat á umhverfisáhrifum nú í maí. Starfsemi Norðuráls hefur frá upphafi verið byggð upp í hóflegum áföngum miðað við íslenskar aðstæður og íslenskt hagkerfi. Mikið hefur verið lagt upp úr að nýta íslenskt hugvit og íslenska þjónustuaðila svo sem verkfræðistofur, verktaka, flutningafyrirtæki og banka. Með þessu móti hefur starfsemi Norðuráls vaxið í sátt við samfélagið og markmiðið er að halda þeirri stefnu.”

Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Oddný Harðardóttir bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garðs, segjast í tilkynningunni fagna samkomulaginu og ljóst sé að byggðarlögunum á Suðurnesjum yrði gríðarlegur akkur í verkefninu. Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja, fagnar samningnum einnig og segir að fyrirtæðið líti á þetta verkefni sem tækifæri til arðbærrar virkjunar sem muni efla atvinnulífið á svæðinu og stækka markaðssvæði hitaveitunnar.

Tillaga THG arkítekta að ásýnd álvers Norðuráls í Helguvík.
Tillaga THG arkítekta að ásýnd álvers Norðuráls í Helguvík.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert