Þriggja mánaða fangelsi fyrir búðarhnupl

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á fimmtugsaldri í 3 mánaða fangelsi fyrir að hafa í febrúar sl. stolið matvöru að andvirði 5089 króna úr verslun Hagkaupa í Kinglunni. Maðurinn játaði brotið þegar málið var tekið fyrir í héraðsdómi í dag og kvað Jónas Jóhannsson, dómari upp dóm í kjölfarið.

Fram kemur í dómnum, að maðurinn hafi áður verið sakfelldur í níu skipti fyrir þjófnað, síðast í 45 daga fangelsi árið 2005.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert