Afmælisdagur forsetans í dag

ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er 64 ára í dag.
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er 64 ára í dag. Mynd/ GF

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, er 64 ára í dag en hann og seinni eiginkona hans Dorrit Moussaieff, giftu sig líka á þessum degi fyrir fjórum árum. Á Bessastöðum tekur forsetinn á móti hópi barna sem eru á leið í alþjóðlegar sumarbúðir víða um heim. Síðar í dag tekur hann á móti Helga Tómassyni,fyrrverandi dansara og stjórnanda San Francisco ballettsins. Forsetinn mun heiðra Helga fyrir störf sín. Athöfnin hefst á Bessastöðum kl 17:00 og verða dansarar San Francisco ballettsins og ýmsir áhrifamenn úr íslensku menningarlífi viðstaddir athöfnina.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert