Ásælist hjálpartæki ástarlífsins

Átján ára piltur var handtekinn í verslun á höfuðborgarsvæðinu í gær en þar hefur hann ekki verið neinn aufúsugestur undanfarna daga. Pilturinn tók hluti úr búðinni ófrjálsri hendi á föstudag en tókst ekki að koma þeim undan. Verslunin selur svonefnd hjálpartæki ástarlífsins.

Lögreglan segir, að aðfaranætur laugardags og sunnudags hafi verið brotist inn í verslunina en eigendur hennar söknuðu m.a. svokallaðs stinningartækis fyrir karlmenn. Öryggismyndavél er á staðnum og leikur lítill vafi á því að pilturinn var að verki í bæði skiptin. Hann kom svo aftur í búðina í gær og var þá handtekinn.

Lögreglan segir engar viðhlítandi skýringar hafa fengist á þessu hátterni piltsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert