Bílvelta á Biskupstungnabraut

mbl.is/Guðmundur Karl

Bíll valt á Biskupstungnabraut í Árnessýslu nú fyrir stundu. Að sögn lögreglunnar á Selfossi er talið að ökumaður og annar farþegi hafi slasast minniháttar.

Bíllinn var með kerru í eftirdragi og mun hafa valdið því að bíllinn tók að rása á veginum og endaði ofan í skurði, mjög skemmdur.

Að sögn lögreglu var ekki nægilega vel gengið frá farmi sem var í kerrunni, og vill hún beina þeim tilmælum til fólks að ganga úr skugga um það að réttilega sé gengið frá kerrufarmi þannig að hann sé tryggur áður en lagt sé af stað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert