Hluti af kvóta Kambs þegar seldur

Fiskvinnslan Kambur á Flateyri hefur þegar selt hluta af kvóta sínum úr byggðalaginu. Fram kom í fréttum Útvarpsins, að Hinrik Kristjánsson, framkvæmdastjóri, vonist til að hluti af eignum og kvóta fyrirtækisins haldist á norðanverðum Vestjörðum og tryggi þannig fólki á Flateyri atvinnu. Hann telur tímabært að stjórnvöld móti sér stefnu í byggðamálum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert