Þrítugur veggjakrotari handtekinn

Þrítugur karlmaður var handtekinn á Reykjavíkurflugvelli laust eftir hádegi í dag. Hann var staðinn að veggjakroti utan við farþegaafgreiðsluna við Þorragötu. Maðurinn var færður á lögreglustöð en lögregla segir ekki vitað hvað honum gekk til.

Lögreglan segir, að veggjakrot sé töluvert vandamál á höfuðborgarsvæðinu en fátítt sé að fullorðið fólk sé tekið fyrir slíka iðju. Í nær öllum tilfellum eru gerendur börn og unglingar en þegar til þeirra næst eru þau látin þrífa krotið af ef því verður við komið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert