Ferðamenn teknir fyrir hraðakstur

Átta ökumenn hafa verið stöðvaðir fyrir hraðakstur undir Eyjafjöllum í dag, flestir voru það erlendir ferðamenn á bílaleigubílum eða fimm og sá sem hraðast ók mældist á 134 km hraða. Lögreglan á Selfossi hefur stöðvað sama fjölda fyrir hraðakstur í dag og mældi einn ökumann á þjóðveginum á 148 km hraða og annar mældist á 101 km hraða þar sem 50 km hámarkshraði er.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert