Hraðakstur vegna vinnunnar

Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði ökumann bíls í dag á 140 km hraða í nágrenni Borgarness á þjóðvegi 1 þar sem 90 km hámarkshraði er. Að sögn lögreglunnar má ökumaðurinn búast við 60 þúsund kr. sekt. Skýringarnar sem hann gaf lögregluþjónum á hraðakstrinum voru þær að hann var að flýta sér í vinnuna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert