Landsmót Fornbílaklúbbsins sett á Selfossi

Ráðherra undir stýri á gamla Ford.
Ráðherra undir stýri á gamla Ford. mbl.is/Guðmundur Karl.

Landsmót Fornbílaklúbbsins var sett á Selfossi í kvöld þegar Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, ók á gamla Ford fyrir fornbílalest um Selfossbæ. Mótið stendur fram á sunnudag og er hápunkturinn glæsileg bílasýning á morgun, ásamt bílaleikjum og ýmsum skemmtiatriðum. Mótinu lýkur á sunnudag með öðrum hópakstri.

Gífurleg bílaumferð hefur verið frá höfuðborgarsvæðinu og austur fyrir fjall í kvöld, og var bílaröðin um tíma nánast samfelld frá Rauðavatni í Reykjavík og austur á Selfoss. Myndin hér til hliðar var tekin um hálf sjö neðst í Kömbunum við Hveragerði.

Samfelld röð niður Kambana.
Samfelld röð niður Kambana. mbl.is/Guðmundur Karl
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert