Búið að slökkva í mosabruna við veginn að Skaftártungu

Búið er að slökkva eld í mosa sem upp kom við vegamót þjóðvegar 1 og vegar að Skaftártungu. Björgunarsveitin Kyndill frá Kirkjubæjarklaustri var kölluð á staðinn, en slökkviliði hafði þegar tekist að ráða niðurlögum eldsins þegar hún kom á staðinn, að því er fram kemur á vefsíðu Landsbjargar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert