Skjót viðbrögð komu í veg fyrir bruna í Akurskóla

vf.is/Hilmar Bragi

Snör handtök starfsfólks í Akurskóla í Reykjanesbæ komu í veg fyrir alvarlegt tjón þegar eldur kom upp í ruslatunnu inni í skólanum nú síðdegis. Innan veggja skólans er rekin leikskóladeild og þar hafði ungur drengur sem ekki er á leikskólanum, borið eld að ruslatunnu. Tunnan brann og allt sem í henni var. Þetta kemur fram á vefsíðu Víkurfrétta.

Það voru starfsmenn í húsinu sem hringdu á slökkviliðið, en brunaviðvörunarkerfi í skólanum fór ekki í gang við brunann. Sjálfvirkt slökkvikerfi er í loftum yfir þeim stað þar sem eldurinn kom upp og það hefði örugglega slökkt eldinn ef hann hefði orðið meiri, segir Sigmundur Eyþórsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja. Til þess kom þó ekki, þökk sé skjótum viðbrögðum starfsfólks í skólanum.

Slökkviliðsmenn komu svo á staðinn og reykræstu bygginguna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert