Maður í sjálfheldu eftir að hafa fallið fram af klettum

Búið er að kalla út björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar vegna manns sem féll fram af klettum við brúnna við Laxárvirkjun. Féll maðurinn í ánna en náðist að komast upp á bakka hennar af sjálfsdáðum en kemst ekki alla leið upp vegna kletta. Sigmenn frá Björgunarsveitinni Garðari á Húsavík og Hjálparsveit skáta í Aðaldal eru á leið á staðinn til aðstoðar lögreglu og sjúkraliði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert