Tíu stöðvaðir fyrir hraðakstur

Lögreglumenn við hraðamælingar með radar.
Lögreglumenn við hraðamælingar með radar. mbl.is/RAX

Tíu ökumenn hafa verið stöðvaðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi frá hádegisbili í dag. Að sögn lögreglunnar var einungis einn þeirra ferðamaður á bílaleigubíl en átak mun hafa verið gert í að láta bílaleigur gera ferðamönnum grein fyrir hraðatakmörkunum hér á landi. Umferð var mikil um umdæmið í dag og hlutfall þeirra sem stöðvaðir voru fyrir hraðakstur í samræmi við það. Enginn var á ofsahraða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert