Farþegum fjölgar stöðugt á Keflavíkurflugvelli

Frá Keflavíkurflugvelli.
Frá Keflavíkurflugvelli. mbl.is/ÞÖK

Samtals komu 411 þúsund farþegar til landsins um Keflavíkurflugvöll fyrri hluta ársins borið saman við 374 þúsund farþega í janúar–júní 2006. Þetta er 9,8% aukning.

Fram kemur í Hagvísum Hagstofunnar, að síðastliðna 12 mánuði, til loka júní, komu 905 þúsund farþegar til landsins og er það 11,9% aukning frá 12 mánuðum þar á undan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert