Stærra Hótel Rangá

Friðrik Pálsson og Hákon Mar Guðmundsson utan við Hótel Rangá.
Friðrik Pálsson og Hákon Mar Guðmundsson utan við Hótel Rangá. mbl.i/Frikki

Það tók ekki langan tíma fyrir Húskarla ehf. frá Hvolsvelli að bæta heilli álmu við Hótel Rangá á Suðurlandi á dögunum. Hákon Mar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Húskarla, stjórnaði verkinu. Hann segir það hafa tekið sína menn 54 daga að byggja álmuna frá því að gólfplata hennar var steypt.

Álman er 480 fermetrar og rúmar 10 herbergi í stærð sem tíðkast á fimm stjörnu hótelum auk 73 fermetra svítu. Þrátt fyrir þennan stutta byggingartíma er álman ekki gerð úr forsteyptum einingum, heldur byggð frá grunni á staðnum. Hákon segir að hörkustarfsfólk og góð skipulagning geri svona lagað mögulegt, en smiðir, flísalagningamenn, rafvirkjar og píparar unnu allir að byggingunni í einu.

Friðrik Pálsson rekur Hótel Rangá. Hann segir mikla eftirspurn eftir gistingu á Suðurlandi og kallar eftir auknum metnaði í ferðaþjónustunni. Hann vill hætta að tala um ládeyðutíma í ferðaþjónustu og segir allt árið eiga að vera háannatíma. Vetrartúrismi sé það sem koma skuli. Hann hefur náð góðri nýtingu á herbergjum Hótels Rangár yfir vetrartímann og var með yfir 50% nýtingu síðastliðinn vetur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert